8.10.2010 | 08:52
Tveggja ára afmæli Bretaárásarinnar
Í dag, 8. október, 2010, eru tvö ár síðan Bretastjórn kyrrsetti eignir íslensku þjóðarinnar með The Landsbanki Freezing Order þar sem notuð voru lög gegn hryðjuverkamönnum og ógnarstjórnum á Ríkisstjórn Íslands, Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitið. Sama dag fóru forsætisráðherra og fjármálaráðherra Hennar Hátingnar með óhróður um Ísland í alþjóða fjölmiðla auk þess að taka bæði Landsbanka og Kaupþingsbanka í Bretlandi og setja þá í þrot. Þetta var dagur hruns íslenska bankakerfisins og verstu árásar annars ríkis á Ísland frá landnámi og markar upphaf deilna við lönd og stofnanir ESB sem ekki sér fyrir endann á. Það eru engin dæmi þess á friðartímum að ein þjóð hafi veist svo að annarri sem bresk yfirvöld gerðu þennan dag gagnvart íslendingum.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:57 | Facebook