Fundur Samtaka Fullveldissinna í Gimli, HÍ 3.júlí. 2010

Sigurbjörn Svavarsson flutti erindi sem nefndist: Ef auðlindastjórnin flyst til Brussel ?

Hann gerði grein fyrir hvernig aðstæður í sjávarútvegi mundu breytast gengi Ísland í ESB. Yfirstjórn fiskveiðanna flyttist þangað og yrði fiskveiðunum stjórnað samkvæmt reglum ESB um nýtingu sameiginlegra auðlinda. Og jafnvel þótt Íslendingar yrðu valdir til að hafa þar forystu um sjávarútvegsmál, eins og ESB-sinnar hafa verið að veifa, breytti það litlu um útkomuna fyrir Ísland. Stærri sjávarútvegs- og matvælafyrirtæki í Evrópu, mörg hver mjög stór og alþjóðleg, fengju þá heimild til að fjárfesta í íslenskum útgerðum. Það þýðir að veiðiheimildirnar fylgdu með og yrðu þaðan í frá á ráðstöfunarrétti erlendra aðila. Undanþágur yrðu aðeins tímabundnar. Viðskiptaaðilar útgerðanna yrðu í vaxandi mæli í ESB , s.s. fiskvinnslur, birgjar og skipa- og tækniþjónusta, og tekjurnar af viðskiptunum við útgerðirnar mundi flytjast að töluverðu leyti frá Íslandi. Vinnsla aflans flyttist í stórauknu mæli úr landi. Varðandi orkuauðlindirnar kom fram að ESB stefndi að einkavæðingu orkufyrirtækjanna, einum samtengdum markaði til að tryggja orkuaðgang í öllum hlutum ESB og þar með miðlæga yfirstjórn orkumála.


Í umræðum kom fram að virðisaukinn af sjávarútveginum fyrir Ísland mundi rýrna mikið við inngöngu í  ESB. Erlendar áhafnir með mun lægri laun yrðu á skipunum og kæmu því ekki sjómannalaunin inn í íslenskt hagkerfi eins og verið hefur. Fyrirtækin sem þjóna flotanum fengju mun minni verkefni og fiskvinnslan í landi mundi rýrna mikið.
Sérstaða sjávarútvegs, miðað við orkuframleiðslu til dæmis, er fólgin í að við innlimun landsins í ESB mun Ísland líklega missa megnið af virðisaukanum af sjávarútvegnum úr landi. Ekki er því rétt að ræða um allar auðlindir í sama orðinu. Megin keppikeflið hlýtur að vera að fullvinnsla fari fram í landinu úr öllum þeim hrávörum sem falla til. Orkuna verður jafnframt að nýta innanlands og útflutningur rafmagns um sæstreng kemur ekki til álita.

 

 

 Guðmundur Ásgeirsson flutti erindi sem nefndist  Orsakir skuldavanda þjóðríkja og hvaða áhrif hann kann að hafa á Evrusvæðið. Hann rakti hlutverk gjaldmiðla og þróun peningamálastjórnar.  Hann gerði grein fyrir efnahagsstjórntækjum sjálfstæðra og fullvalda ríkja með eigin gjaldmiðil og hvernig þau tengjast gjaldmiðlinum. Peningamálastjórn ásamt með fjárlagagerð hvers ríkis eru mikilvægustu efnahagsstjórntækin. Hann benti á að með því að taka upp aðra mynt mundi stór og mikilvægur hluti efnahagsstjórnunar á Íslandi færast úr landi. Hann lagði áherslu á að ekki sé til vondur gjaldmiðill heldur vond efnahagsstjórn. Hann nefndi vandamál landa evrusvæðisins þessu til stuðnings, þ.á.m. Grikklands sem hefur fjárlagagerð á eigin hendi en ekki peningamálastjórnun. Þar eð skuldavandi evrulandsins Grikklands snertir evrusvæðið verður efnahagsstjórn landsins, þ.á.m. fjárlagagerðin,  vandamál alls evrusvæðisins.


Í umræðum kom fram að hagstjórn og peningamálastjórn eru óaðskiljanlegar og að til eru mismunandi kerfi í gjaldmiðilsstjórn. Eftir hrunið þurfa Íslendingar að taka alla efnahagsstjórnunina til gagngerðar skoðunar þar með peningamálastjórnina einnig.
Kom fram hjá Lofti Altice Þorsteinssyni að peningastefnur eru einungis tvær: torgreind peningastefna (discretionary monetary policy) og reglu-bundin peningastefna (rule-bound monetary policy). Svo nefnd peningastefnunefnd hjá Seðlabankanum er grín. Mikilvægt er fyrir Íslendinga að skilja, að mikill munur er á peningastjórn smárra hagkerfa og stórra. Lítil hagkerfi þola ekki gengissveiflur, en þær skipta stór hagkerfi engu máli. Ef litlu hagkerfi er ætlað að ná stöðugleika, er mikilvægt að festa gjaldmiðilinn við alþjóðlega viðurkennd verðmæti, eins og US Dollar eða gull.  Slík festing er einungis möguleg með reglu-bundinni peningastefnu, sem kallar á að Seðlabankinn verði lagður niður og peninga-útgáfa verði í höndum myntráðs.

 

 

 Friðrik Daníelsson flutti erindi sem nefndist Hvar er endurreisn efnahagslífsins?

Hann lýsti hvernig allir viðskiptabankar og fjárfestingarsjóðir í eigu þjóðarinnar hurfu í aðdraganda og í hruninu sjálfu og urðu þrotabú þriggja fallinna banka. Enginn veit hverjir munu í framtíðinni eiga bankana  sem eru reistir á rústum hrunsins  né heldur er vitað hvaða stefnu þeir munu fylgja eða hvernig þeir munu þjóna Íslendingum. Ríkið hefur hvorki stofnað nýjan viðskiptabanka né fjárfestingalánasjóð í þjóðareigu sem komið geta í stað þeirra sem þjónuðu atvinnulífi á forræði landsmanna. Ekki hafa heldur verið tilburðir til að endurreisa ríkisfyrirtæki sem urðu einkavæðingunni eða hruninu að bráð, s.s áburðarverksmiðjuna og strandflutningana. Engin stefna hefur verið tekin um nýtingu orkulindanna og  eru verktakar og orkufyrirtæki að rýrna hratt og kunnáttan að fara úr landi og þynnast út.  Fyrirtæki sem vilja byggja upp iðnað fá misvísandi svör og engin áform eru um að byggja upp iðnað í eigu Íslendinga. Ný lagasetning um fjármálastarfsemina er fálmkennd og óhnitmiðuð. Endurreisn ríkissjóðs er ekki líkleg nema hafnað verði ólöglegri Icesaveábyrgð. Einnig þarf að krefja Bretastjórn bóta fyrir kyrrsetningu þjóðareigna og óhróður. Áherslan í viðskiptamálum er á að taka upp viðskiptahöft ESB við umheiminn þó að Ísland sé aðili að EFTA sem vinnur stöðugt að fríverslun við umheiminn utan sem innan Evrópu. EFTA er sá vettvangur sem Ísland getur unnið að sínum viðskiptamálum á við ESB. Endurreisn lýðræðisins gengur hægt og virðist stjórnlagaþing ótímabær sýndaraðgerð en breytiungar á stjórnlögum þurfa langa umræðu og skoðun. Einfaldar lagabreytingar gætu hafið endurreisn lýðræðisins án tafar en engar slíkar hafa verið gerðar.


Í umræðum kom fram að EES-samningurinn kemur í veg fyrir endurreisnina, m.a að hægt sé að setja nýjan lagaramma um fjármálastarfsemina sem hentar hérlendis, einnig að hægt sé að halda orkufyrirtækjunum í almannaeigu og afnema neyðarlögin með vel ígrundaðri lagasetningu til frambúðarnota.
Ísland þarf að segja upp samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Að líkindum munum við verða neyddir til að yfirgefa EES, vegna Icesave-kúgunarinnar. Fyrirmynd okkar er Sviss með sinn tvíhliða viðskiptasamning við ESB. Í hverju málinu á fætur öðru hefur EES brugðið fyrir okkur fæti og við höfum leiðst til ógæfulegra ákvarðana vegna EES, eins og til dæmis Schengen samninginn.


Opinn félagsfundur

Staður: Salur G102 í HÍ, Gimli,

Tími. Laugardaginn 3 júlí  kl. 11:00

 

Fundarefni, stutt erindi um:  

 

  Ef auðlindastjórnin flyst til Brussel ?

  Orsakir skuldavanda þjóðríkja og hvaða áhrif hann kann að hafa á Evrusvæðið?

  Hvar er endurreisn efnahagslífsins?

 

Almennar umræður

Starfið framundan: Umræður


Íslenskir stjórnmálamenn þyrftu að fara á námskeið til Sviss

Svisslendingar eru ánægðir með stöðu sína í Evrópu enda höfnuðu  þeir bæði ESB og EES-samningnum 

Doris Leuthard, forseti Sviss og efnahagsráðherra, segist ekki telja að breytingar verði  á stöðu Sviss gagnvart Evrópusambandinu eða EES. Landsmenn séu sáttir við mál eins og þau séu nú. Leuthard sat fund EFTA-ríkjanna í Reykjavík í dag. Leuthard segir Svisslendinga hafa langa reynslu af þátttöku í alþjóðastofnunum og margar hafi aðsetur í landinu. Sviss hafi kosið að standa utan EES en hafi meir en hundrað tvíhliða samninga við ESB. Frá þesssu segir RÚV í dag, falið innan um fréttir af einhverjum upphrópunum frá Össuri Skarphéðinssyni sem enga þýðingu hafa miðað við þá stórfrétt að EFTA var að undirrita fríverslunarsamning við Úkraínu. 

Íslendingar aftur á móti sitja uppi með nokkur þúsund tilskipanir frá ESB sem eru ekki umsemjanlegar tvíhliða af því Alþingi álpaðist til að samþykkja EES-samninginn rétt eftir að Svisslendingar höfnuðu honum. Þeir þekkja sína nágranna frá fornu fari. Eins og mönnum er kunnugt er í þessum tilskipanahaug regluverkið frá ESB um bankastarfsemina sem var helsta rót hrunsins hér 8. október 2008. Svisslendingar eru líka með ofvaxið bankakerfi en það hrundi ekki. 

Það merkilega við fréttir dagsins um ráðherrafundinn í Reykjavík er að EFTA var að gera enn einn mikilvægan fríverslunarsamning, í þetta sinn við Úkraínu, og að leggja drög að fleiri slíkum. EFTA eru fríverslunarsamtök sem Íslendingar hafa verið aðilar að í fjóra áratugi og eru ekki yfirþjóðleg með tilskipanavald eins og ESB hefur yfir EES-löndunum. EFTA hefur gert fríverslunarsamninga við margar þjóðir, þ.á.m. Kanada, og er stöðugt að stækka hóp fríverslunarlanda sem Ísland hefur þar með aðgang að.  

Verslun Íslands við  V-Evrópulönd stjórnast að mestu enn þann dag í dag af fríverslunarsamningi við ESB, að grunni til frá 1972, sem er hagstæður Íslandi og var EES-samningurinn því í raun óþarfur vegna verslunar við ESB. Árangur Sviss, sem hefur sitt laga- og reglusetningarvald óskert heima fyrir, er áhugaverður fyrir Ísland. Þar eð þeir eru ekki í EES eru þeir ekki undir eftirliti ESA, þeirrar að endemum frægu eftirlitsstofnunar ESB (þó hún sé kennd við EFTA sem er villandi), heldur semja tvíhliða um sín mál við ESB. Það er kominn tími til að senda íslenska stjórnmálamenn til Sviss á námskeið um hvernig lítil lönd vernda sitt fullveldi fyrir stórveldadraumum nágrannalanda.


Samþykkt félagsfundar Samtaka Fullveldissinna um þjóðaratkvæðagreiðslu

Laugardaginn 6. mars næstkomandi verður efnt til þjóðaratkvæðagreiðslu í fyrsta sinn á lýðveldistímanum. Hún markar tímamót í lýðræðisþróun landsins. Málskotsréttur forsetans í stjórnarskránni frá 1944 kemur nú fyrst til framkvæmda með þjóðaratkvæðagreiðslu. Í fyrsta skiptið á lýðveldistímanum verður ákvörðun um mikilvægt mál tekin utan valdakerfis stjórnmálaflokka. Þjóðin sjálf mun nú taka ákvörðunina.

Samtök Fullveldissinna skora á landsmenn að neyta atkvæðisréttar síns og greiða atkvæði um Icesave-lögin laugardaginn 6. mars, 2010.

Reykjavík 27.2.2010

61% aðspurðra telja vanta nýtt stjórnmálaafl

Í nýrri vefkönnun Reykjavík síðdegis kemur fram sá afdráttarlausi vilji fólks til að sjá nýtt stjórnmálaafl hér á landi.  Samtök Fullveldissinna taka áskoruninni.

 


Með lögum skal land byggja

Ómar Geirsson skrifar:

Alþingismenn setja lög.  En Alþingismenn átta sig ekki á því að eftir lögum á að fara.  Þeir hafa ekkert vald til að semja við breta og Hollendinga í ICEsave deilunni ef sá samningur felur í sér fjárgjafir eða friðunarskatt til hinna erlendu óvinaríkja. 

Þeir hafa aðeins vald til að semja um að eftir lögum sé farið.  Það er laganna að skera úr um kröfur breta og Hollendinga.  

Af svipuðu tilefni samdi ég pistil í gær, sem þarf að fara reglulega í loftið til að fólk átti sig á um hvað ICEsave deilan snýst,og hvað lausn lögin krefjast að sé farin.  Hér kemur hann aðeins styttur og breyttur og ef fólk vill ekki missa 507 milljarða hið minnsta úr út hagkerfinu, til að greiða kúgunarfé breta, þá ættu menn að lesa þennan pistil, íhuga, reyna að skilja forsendur hans, og síðan gera kröfu sem bergmálar um þjóðfélagið, með lögum skal land byggja.

 

Smelltu hér til að lesa meira.

 


Stuðningur við Icesavelögin minnkar.

Reykjavík síðdegis birti eftirfarandi vefkönnun í dag, en hún sýnir að stuðningur við Icesavelögin minnkar frá fyrri könnunum.


Icesave fordæmisgefandi?

Ásta Hafberg skrifar

 

Eftir að hafa fylgst með viðbrögðum í Bretlandi við synjun forseta Íslands á Icesave lögunum, sit ég með blendnar tilfinningar.

Það er greinilegt að aðalatriðið fyrir Brown og Darling er að þröngva okkur inn í samninginn sem þeir settu upp, og er illviðráðanlegur fyrir okkur, kosta hvað það vill. Þeir eru tilbúnir að setja fótinn fyrir okkur í aðildarviðræðum við ESB og gera allt sem í þeirra valdi stendur til að stoppa AGS í þeirra áætlunum. Það er meira að segja gengið svo langt að okkur er hótað fjárhagslegri og pólitískri útilokun ef við göngum ekki að afarkostunum þeirra...

 

Smelltu hér til að lesa meira.

 


Fyrstu kannanir berast

Þrjár kannanir um afstöðu Íslendinga til Icesave laganna svokölluðu hafa birst í dag.  Tvær þeirra sýna meirihluta fyrir því að fella lögin úr gildi.

Við birtum þær hér í tímaröð

MMR

mmr.png

Reykjavík síðdegis

Capacent-Gallup

 

Samtök Fullveldissinna biðja fólk að anda með nefinu og láta kannanir ekki hafa skoðanamyndandi áhrif á sig.

 


Við fögnum öll

Samtök Fullveldissinna fagna ákvörðun Forseta Lýðveldisins og þakka landsmönnum öllum fyrir vel unnið starf í þágu þjóðarinnar.

 


mbl.is Staðfestir ekki Icesave-lög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband