22.5.2009 | 11:55
Samtök fullveldissinna stofnuð.
Fyrr í þessum mánuði voru Samtök fullveldissinna stofnuð. Fram að stofnfundi sem fyrirhugað er að halda í Ágúst var útnefnd þriggja manna bráðabrigða stjórn.
- Sigurbjörn Svavarsson, Mosfellsbæ
- Guðmundur Ásgeirsson, Reykjavík
- Axel Þór Kolbeinsson, Hveragerði
Samtökin hafa í hyggju að vinna á pólitískum grunni og stefna að framboði til Alþingis.
Meðal helstu baráttumála er að standa vörð um fullveldi Íslands, breytingar á lagaumhverfi fjármálastofnanna, endurskoðun hagstjórnar, aukin sjálfbærni þjóðarinnar og aukin samskipti við þjóðir heimsins með gerð fríverslunarsamninga og tvíhliða viðskiptasamninga.
Fulltrúar samtakana munu ferðast um landið í sumar til að kynna starf samtakanna og hugmyndir ásamt því að bjóða fólki að taka þátt í starfi okkar og móta sameiginlega grunnstefnu. Tilkynnt verður um dagsetningar og staðsetningar þessara funda á þessari vefsíðu ásamt því að vefpóstur verður sendur til þeirra sem eru á póstlista okkar.
Þeir sem hafa áhuga á að skrá sig á póstlista eru beðnir um að senda tilkynningu um það á l.listinn@gmail.com
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.8.2009 kl. 10:14 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning